Nemar úr MA í vettvangsferð hjá KSÍ
Nokkrir nemar úr MA eyddu lunganum af föstudeginum í vettvangsferð á skrifstofu Knattspyrnusambands Íslands. Þeir fengu kynningu frá fræðslustjóra KSÍ og skoðuðu starfsemina frá öllum hliðum.
Þeir eru hér sunnan heiða í vettvangsheimsóknum og var skrifstofa KSÍ eitt af fyrirtækjunum sem þeir heimsóttu.
Nemarnir eru (frá vinstri): Víkingur Pálmason, Jón Þór Kristjánsson, Gísli Páll Helgason, Konráð Þór Þórhallsson og Már Gíslason. Á myndina vantar Andra Fannar Stefánsson.