Kjartan Þorbjörnsson hlaut viðurkenningu
Ljósmyndurum á leikjum í efstu deildum knattspyrnunnar á Íslandi og landsleikjum fjölgar stöðugt, og þeirra þáttur í umfjöllun um íþróttina verður sífellt veigameiri. Kjartan Þorbjörnsson, eða Golli eins og hann gjarnan kallaður, hefur starfað sem ljósmyndari í tæp 20 ár, þar af hjá Morgunblaðinu síðan 1996.
Á þessum tíma hefur hann myndað knattspyrnu og knattspyrnuleiki hérlendis jafnt sem erlendis af mikilli fagmennsku og einskærum áhuga á íþróttinni.