Breiðablik og Víkingur Reykjavík hlutu Dragostytturnar
Breiðablik og Víkingur Reykjavík fengu Dragostytturnar á 65. ársþingi KSÍ sem haldið er á Hilton Nordica Hótel. Þá fengu Afturelding og Markaregn viðurkenningu fyrir prúðmannlegan leik í 2. og 3. deild karla. Það var formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sem afhenti fulltrúum félaganna viðurkenninguna.
Drago stytturnar hljóta þau lið í efstu tveimur deildum karla, sem sýna prúðmannlegastan leik miðað við gul og rauð spjöld dómaranna. Þá eru veittar sérstakar viðurkenningar í 2. og 3. deild karla og er stuðst við sömu forsendur og í efstu tveimur deildunum.
Það var formaður KSÍ, Geir Þorsteinsson, sem afhenti fulltrúum félaganna stytturnar á 65. ársþingi KSÍ.