65. ársþingi KSÍ lokið
65. ársþingi KSÍ er lokið en það fór fram að þessu sinni á Hilton Nordica Hótel. Þinginu lauk um kl. 15:00 og má sjá um afgreiðslu tillagna og aðrar fréttir af þinginu hér. Geir Þorsteinsson var endurkjörinn formaður KSÍ en hann var einn í kjöri. Kosið var um fjögur sæti í aðlstjórn KSÍ og voru fimm í framboði.
Gild atkvæði voru 104 og skiptust þau á eftirfarandi hátt:
Guðrún Inga Sívertsen 104 atkvæði
Vignir Már Þormóðsson 91 atkvæði
Gylfi Þór Orrason 90 atkvæði
Róbert Agnarsson 90 atkvæði
Einar Hermannsson 41 atkvæði
Þau Guðrún Inga, Vignir Már, Gylfi Þór og Róbert sitja því í stjórn næstu tvö árin. Ásamt þeim sitja því í aðalstjórn:
Jón Gunnlaugsson
Lúðvík S. Georgsson
Ragnhildur Skúladóttir
Rúnar Arnarson