Kristinn í góðum hópi á Kýpur
Kristinn Jakobsson er þessa dagana á Kýpur þar sem hann situr ráðstefnu bestu dómara UEFA, "UEFA Elite". Ganga dómarnir í gegnum ýmis próf á meðan ráðstefnunni stendur en þarna er UEFA að undirbúa dómara sína fyrir næstu verkefni í Meistaradeild UEFA og Evrópudeild UEFA.
UEFA velur dómara sérstaklega á þessa ráðstefnu og er það til marks um góðan árangur Kristins að hann er þarna á meðal þeirra bestu í Evrópu.