Unglingadómaranámskeið KSÍ og Fjölnis
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Fjölni í Dalhúsum miðvikudaginn 27. janúar. Námskeiðið hefst kl. 19:30 og stendur í 2,5 klst. Aðaláherslan á námskeiðinu verða knattspyrnulögin en auk þess kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.
Námskeiðið er ókeypis.
Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar og vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.
Skráning er hafinn á magnus@ksi.is.
Allir sem náð hafa 15 ára aldri eru velkomnir á námskeiðið.