Unglingadómaranámskeið KSÍ verður haldið í höfuðstöðvum KSÍ fimmtudaginn 27. janúar
Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við Val í höfuðstöðvum KSÍ, fimmtudaginn
27. janúar. Námskeiðið hefst kl. 19:00 og stendur í 2,5 klukkustund. Aðaláherslan á námskeiðinu verða knattspyrnulögin ásamt ýmsu kynningarefni, fræðsluefni, skýringum og skýringarmyndum.
Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar.
Námskeiðið er ókeypis.
Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hefur rétt á að dæma í 4. flokki og neðar og vera aðstoðardómari upp í 2. flokk.
Skráning er hafinn á magnus@ksi.is