Gögn frá þremur félögum komin með pósti
Leyfisgögn frá þremur félögum í 1. deild bárust skrifstofu KSÍ með póstinum á þriðjudag. Póststimpillinn á öllum sendingunum sýndi að sendingardagur var 17. janúar, og því teljast þessi félög hafa skilað innan tímamarka. Félögin þrjú eru BÍ/Bolungarvík, sem undirgengst nú leyfiskerfið í fyrsta sinn, ÍA og Víkingur Ólafsvík. Þar með hafa öll félög í 1. deild skilað leyfisgögnum, innan tímamarka.
Gögnin sem leyfisumsækjendur skila í janúar snúa að öllum öðrum þáttum en fjárhagslegum, en Víkingar í Ólafsvík gera gott betur en það og skila fjárhagsgögnum líka. Það hefur aldrei áður gerst í sögu leyfiskerfisins að félag skil fjárhagsgögnum, og þar á meðal endurskoðuðum ársreikningi, í janúar.
Leyfisstjórn stefnir á að ljúka fyrstu yfirferð gagna um miðja næstu viku, og í framhaldinu verður unnið að úrbótum með félögunum, þar sem við á.
Lokaskiladagur fjárhagsgagna er síðan 21. febrúar og leyfisráð kemur saman til ákvarðanatöku í byrjun mars.