Fram, ÍBV, ÍR og Selfoss skiluðu leyfisgögnum
Framarar, Selfyssingar, Eyjamenn og ÍR-ingar hafa skilað leyfisgögnum sínum, öðrum en fjárhagslegum, vegna umsóknar um þátttökuleyfi keppnistímabilið 2011. Þar með hafa þrjú 1. deildarfélög skilað, en KA skilaði í fyrstu viku ársins. Níu Pepsi-deildarfélög hafa þá skilað (Breiðablik, FH, Fram, Fylkir, Grindavík, ÍBV, Keflavík, KR og Valur).
Lokaskiladagur gagna, annarra en fjárhagslegra, er mánudagurinn 17. janúar. Vakin er athygli á því að félögum er heimilt að setja gögn í póst þann dag og ef póststimpillinn sýnir 17. janúar 2011 telst viðkomandi félag hafa skilað innan tímamarka, þó gögnin berist síðar.