Kosningar í stjórn á 65. ársþingi KSÍ
Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 15. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ skriflega minnst hálfum mánuði fyrir þing, 29. janúar nk.
Stjórn KSÍ er kosin á knattspyrnuþingi og skal kosning fara þannig fram:
a. Kosning formanns annað hvert ár til tveggja ára í senn.
b. Kosning 4ra manna í aðalstjórn til tveggja ára en fjórir menn ganga úr aðalstjórn á hverju ári.
c. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum í stjórn til eins árs.
d. Kosning 3ja manna til vara í aðalstjórn til eins árs.
e. Kosning 4ra manna frá landsfjórðungunum til vara til eins árs.
Kosning formanns
Geir Þorsteinsson var kjörinn formaður KSÍ til tveggja ára á 63. ársþingi KSÍ í febrúar 2009. Tveggja ára kjörtímabili Geirs sem formanns lýkur á 65. ársþingi KSÍ þann 12. febrúar 2011.
Geir Þorsteinsson gefur kost á sér til áframhaldandi formennsku.
Kosning í aðalstjórn
· Tveggja ára kjörtímabili eftirtaldra í aðalstjórn KSÍ lýkur á 65. ársþingi KSÍ 12. febrúar nk.:
Í aðalstjórn
Gylfi Þór Orrason, varaformaður Reykjavík
Guðrún Inga Sívertsen, gjaldkeri Reykjavík
Róbert Agnarsson Reykjavík
Vignir Már Þormóðsson Akureyri
Guðrún Inga Sívertsen, Gylfi Þór Orrason, Róbert Agnarsson og Vignir Már Þormóðsson gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.
Auk ofangreindra sitja í aðalstjórn (tveggja ára kjörtímabili þeirra lýkur í febrúar 2012):
Lúðvík S. Georgsson Reykjavík
Jón Gunnlaugsson, ritari Akranesi
Ragnhildur Skúladóttir Reykjavík
Rúnar Arnarson Reykjanesbæ
Kosning aðalfulltrúa landsfjórðunga
· Eins árs kjörtímabili aðalfulltrúa landsfjórðunganna lýkur á 65. ársþingi KSÍ 12. febrúar nk.:
Aðalfulltrúar landsfjórðunga
Jakob Skúlason Vesturland
Björn Friðþjófsson Norðurland
Árni Ólason Austurland
Tómas Þóroddsson Suðurland
Eftirtaldir hafa boðið sig fram til aðalfulltrúa landsfjórðunga:
Jakob Skúlason Vesturland
Björn Friðþjófsson Norðurland
Tómas Þóroddsson Suðurland
Valdimar Einarsson Austurland
(Valdimar var varalandshlutafulltrúi og tók við af Árna Ólasyni þegar hann hætti um mitt ár 2010).
Kosning varamanna í aðalstjórn
· Eins árs kjörtímabili varamanna í aðalstjórn lýkur á 65. ársþingi KSÍ 12. febrúar nk.:
Varamenn í aðalstjórn
Jóhannes Ólafsson Vestmannaeyjum
Sigvaldi Einarsson Kópavogi
Þórarinn Gunnarsson Reykjavík
Eftirtaldir gefa kost á sér sem varamenn í aðalstjórn:
Jóhannes Ólafsson Vestmannaeyjum
Sigvaldi Einarsson Kópavogi
Þórarinn Gunnarsson Reykjavík
Með tilkynningu um framboð er óskað eftir stuttri ferilskrá til birtingar á heimasíðu KSÍ.