Skiladögum í leyfisferlinu ýtt aftar
Skiladögum leyfisgagna í leyfisferlinu fyrir keppnistímabilið 2011 hefur verið ýtt eilítið aftar, þar sem þeir lenda báðir á helgi. Skilafrestur gagna, annarra en fjárhagslegra, hefur verið framlengdur til 17. janúar, þar sem 15. janúar er á laugardegi. Skilafrestur fjárhagsgagna hefur jafnframt verið framlengdur til 21. febrúar, þar sem 20. febrúar er á sunnudegi.
Eflaust kemur þetta einhverjum leyfisumsækjendum vel, sem fá þarna smá aukafrest til að ganga frá viðeigandi gögnum áður en þau skila þeim til leyfisstjórnar, ef þörf er á.