Yfirlýsing frá Félagi deildadómara á Íslandi
Yfirlýsing frá Félagi deildadómara á Íslandi varðandi beiðni frá skoska knattspyrnusambandinu um dómgæslu í Skotlandi næstu helgi.
Skoska knattspyrnusambandið hefur farið þess á leit við íslenska knattspyrnudómara að við dæmum í Skotlandi næstkomandi helgi.
Ástæða þessarar beiðni er verkfall skoskra knattspyrnudómara.
Höfum við í Félagi deildadómara ákveðið að virða ákvörðun skoskra dómara um verkfall og blanda okkur ekki í þau mál.
Vissulega væri það upphefð fyrir íslenska dómara að fá að dæma leiki í efstu deild í Skotlandi en við aðrar aðstæður en nú eru.
f.h. Félags Deildadómara
Magnús Jón Björgvinsson
Sigurður Óli Þórleifsson
Magnús Þórisson