Áfrýjunardómstóll KSÍ - Fyrri úrskurði hrundið
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur hrundið fyrri úrskurði aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í máli nr. 5 2010. Þar hafði Aftureldingu verið dæmdur sigur í leik liðsins gegn Keflavík í eldri flokki karla 30+ en leikurinn fór fram 19. september 2010 á Varmár velli.
Í dómsorðum Áfrýjunardómstóls KSÍ segir:
Hrundið er úrskurði aga- og úrskurðarnefndar KSÍ í málinu nr. 5/2010 Afturelding gegn Keflavík. Úrslit í leik félaganna á Varmárvelli þann 19. september 2010 standa fjögur mörk gegn þremur Keflavík í vil.