Kristinn dæmir leik Lille og Levski Sofia í Evrópudeildinni
Kristinn Jakobsson mun dæma leik Lille frá Frakklandi og Levski Sofia frá Búlgaríu í C riðli Evrópudeildar UEFA en leikið verður í Frakklandi næstkomandi fimmtudag. Kristni til aðstoðar verða þeir Sigurður Óli Þorleifsson og Jóhann Gunnar Guðmundsson og fjórði dómari verður Jóhannes Valgeirsson. Aukaaðstoðardómarar verða þeir Magnús Þórisson og Þóroddur Hjaltalín.