Nemar í vettvangsnámi hjá KSÍ
Nú í október eru þrír íþróttafræðinemar í vettvangsnámi hjá Knattspyrnusambandi Íslands og hefur Sigurður Ragnar Eyjólfsson fræðslustjóri umsjón með þeim á meðan þeir eru hér. Nemendurnir heita Haukur Már Ólafsson, Hrannar Leifsson og Kristinn Ólafsson og stunda þeir nám í Háskóla Íslands á Laugarvatni.
Hlutverk þeirra er að fylgjast með starfsemi sambandsins á sem flestum sviðum og fá þeir einnig að taka þátt í starfinu sem hér fer fram.