U21 karla - Skotland - Ísland í kvöld kl. 18:45
Það er í kvöld sem seinni umspilsleikur á milli Skotlands og Íslands fer fram á Easter Road i Edinborg. Í húfi er sæti í úrslitakeppni EM U21 sem fer fram í Danmörku í júní á næsta ári. Íslensku strákarnir unnu fyrri leikinn á Laugardalsvelli 2 - 1 og má því segja að allt sé í járnum.
Það er ekki ofsögum sagt að síðustu leikir hjá þessu liði hafa verið hver öðrum mikilvægari. Ekki bjuggust margir við því að strákarnir tryggðu sér sæti í umspili eftir að dregið hafði verið í riðla undankeppninnar en það tókst engu að síður. Þar voru m.a. annars Evrópumeistarar Þjóðverja skildir eftir. Liðið hefur sýnt mikinn karakter í þessari keppni og nú er lokatakmarkið innan seilingar.
Undirbúningurinn er hefðbundinn á leikdegi hjá liðinu. Í gærkvöldi var æft á keppnisvellinum, Easter Road, sem virðist í mjög góðu ástandi. Í dag er ekki æfing, hefðbundin gönguferð í morgun og svo er hvíld áður en fundað verður síðar í dag.
Skotar búast við um 15.000 manns á Easter Road í kvöld og eru vongóðir um hagstæð úrslit. Það er íslenski hópurinn líka og ríkir mikil eftirvænting eftir því þegar sænski dómarinn Markus Strömbergsson flautar til leiks kl. 19:45 að staðartíma eða 18:45 að íslenskum tíma. Það er ljóst að íslenska liðið, klætt hvítum treyjum, bláum buxum og hvítum sokkum, verður tilbúið í slaginn.
Leikurinn verður í beinni sjónvarpsútsendingu hjá RÚV og hefst útsending þar kl. 18:25.
Áfram Ísland!