U21 karla - Óskar Pétursson inn í hópinn
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur gert eina breytingu á hóp sínum er hélt til Edinborgar í morgun. Þar verður leikinn seinni umspilsleikurinn í við en í húfi er sæti í úrslitakeppni EM í Danmörku að næsta ári.
Markvörðurinn Óskar Pétursson, úr Grindavík, kemur inn í hópinn í stað Haraldar Björnssonar sem er meiddur.
Leikið verður við Skota á Easter Road í Edinborg, mánudaginn 11. október og hefst leikurinn kl. 18:45 að íslenskum tíma eða 19:45 að staðartíma. Leikurinn verður í beinni útsendingu hjá Ríkissjónvarpinu.