Austurrískir dómarar á leik Íslands og Portúgals
Það verða Austurríkismenn sem sjá um dómgæsluna á viðureign Íslands og Portúgals í undankeppni EM 2012 á þriðjudag. Leikið er á Laugardalsvellinum og hefst leikurinn kl. 19:45. Dómarinn heitir Thomas Einwaller, er 33 ára gamall og hefur verið FIFA-dómari síðan 2005.
Dómari | Thomas Einwaller |
Aðstoðardómari 1 | Roland Heim |
Aðstoðardómari 2 | Armin Eder |
4. dómari | Bernhard Brugger |