U21 karla - Ísland mætir Skotlandi í kvöld kl. 19:00
Í kvöld fer fram fyrri umspilsleikur á milli Íslands og Skotlands en leikið er um sæti í úrslitakeppni EM U21 karla. Leikurinn hefst kl. 19:00 á Laugardalsvelli en miðsala á vellinum hefst kl. 12:00. Vert er þó að minna á að hægt er að kaupa miða á netinu fram að leik. Áhorfendur eru hvattir til þess að vera tímanlega í því til að forðast biðraðir rétt fyrir leik.
Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 7. október og hefst kl. 19:00. Miðaverð er 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri. Ekki er selt í númeruð sæti og því frjálst sætaval. Á leikdag opnar miðasala á Laugardalsvelli kl. 12:00 en völlurinn sjálfur opnar hinsvegar kl. 18:00. Handhafar A passa 2010 þurfa ekki að sækja miða á þennan leik heldur er nóg að sýna hann við innganginn.
Stuðningur áhorfenda getur skipt sköpum í þessum leik, mikilvægt er að ná góðum úrslitum í fyrri leiknum því erfiður útileikur er svo framundan í Edinborg, mánudaginn 11. október. Strákarnir eiga svo sannarlega stuðninginn skilið, fjölmennum í Laugardalinn og látum vel í okkur heyra.
Styðjum strákana okkar! Áfram Ísland!