Úrslitakeppni EM kvenna 2013 fer fram í Svíþjóð
Á fundi framkvæmdastjórnar UEFA í gær var ákveðið að úrslitakeppni EM kvenna fari fram í Svíþjóð árið 2013. Valið stóð á milli Svíþjóðar og Hollands. Einnig var ákveðið að fjöldi þátttökuþjóða í úrslitakeppninni yrði áfram 12 þjóðir en umræður höfðu verið um að þeim skyldi fjölga í 16 þjóðir. Dregið verður í riðla í undankeppninni í mars á næsta ári.
Síðasta úrslitakeppni EM kvenna fór fram, sem kunnugt er, í Finnlandi og var Ísland þar á meðal þátttakenda í fyrsta sinn.