U21 karla - Tryggið ykkur miða á Ísland - Skotland
Miðasala á fyrri umspilsleik U21 karla, Ísland - Skotland, er nú í fullum gangi. Það er um að gera fyrir knattspyrnuáhugamenn að tryggja sér miða í forsölu og forðast þannig biðraðir í miðasölu á leikdag. Selt er í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is.
Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 7. október og hefst kl. 19:00. Miðaverð er 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir börn 16 ára og yngri. Ekki er selt í númeruð sæti og því frjálst sætaval. Á leikdag opnar miðasala á Laugardalsvelli kl. 12:00 en völlurinn sjálfur opnar hinsvegar kl. 18:00. Handhafar A passa 2010 þurfa ekki að sækja miða á þennan leik heldur er nóg að sýna hann við innganginn.
Frábær árangur strákanna í U21 landsliðinu hefur ekki farið framhjá neinum en liðið á nú möguleika á því að tryggja sér sæti í úrslitakeppni EM sem fer fram í Danmörku á næsta ári. Framundan eru tveir leikir við Skota sem skera út um það hvort liðið kemst áfram.
Stuðningur áhorfenda getur skipt sköpum í þessum leik, mikilvægt er að ná góðum úrslitum í fyrri leiknum því erfiður útileikur er svo framundan í Edinborg, mánudaginn 11. október. Strákarnir eiga svo sannarlega stuðninginn skilið, fjölmennum í Laugardalinn og látum vel í okkur heyra.
Styðjum strákana okkar! Áfram Ísland!