U21 karla - Arnór Smárason ekki með gegn Skotum
Arnór Smárason verður ekki með U21 karlalandsliðinu í umspilsleikjum liðsins gegn Skotum sem fara fram 7. og 11. október. Arnór á við meiðsli að stríða og er því ekki með hópnum fyrir þessi verkefni.
Hópurinn æfði saman í gær en síðustu tveir leikmennirnir koma til móts við hópinn í dag, þeir Birkir Bjarnason og Rúrik Gíslason. Hópurinn æfir svo tvisvar sinnum í dag.
Miðasala á leikinn hér á Laugardalsvelli, sem fer fram fimmtudaginn 7. október kl. 19:00, er í fullum gangi í gegnum miðasölukerfi midi.is. Miðinn kostar 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir börn yngri en 16 ára.