Uppselt á Ísland-Portúgal
Uppselt er á leik Íslands og Portúgals í undankeppni EM 2012, en liðin mætast á Laugardalsvelli þriðjudaginn 12. október. Ljóst er að Laugardalsvöllur verður því troðfullur af fólki og stemmningin verður vonandi frábær. Strákarnir okkar treysta á öflugan stuðninng í leiknum, enda er hefur Portúgal á að skipa nokkrum af öflugustu leikmönnum heims.
Ísland hefur tvisvar áður mætt Portúgal, en það var í undankeppni Ólympíuleikanna 1988.