U21 karla - Ísland einu sinni unnið Skota
Eins og kunnugt er leika Íslendingar og Skotar tvo leiki í umspili um hvort liðið kemst í úrslitakeppni EM 2011. Fyrri leikurinn fer fram á Laugardalsvelli, fimmtudaginn 7. október og sá síðari í Edinborg, mánudaginn 11. október. Miðasala er í fullum gangi á leikinn hér á Laugardalsvelli.
Ef viðureignir þessara þjóða í aldursflokknum eru skoðaðar má sjá að Skotar hafa haft betur. Í sex leikjum sem spilaðir hafa verið hafa Íslendingar unnið einu sinni, Skotar fjórum sinnum og einu sinni hafa þjóðirnar gert jafntefli. Síðasti leikur var vináttulandsleikur í febrúar 2006 þegar Skotar unnu 4 - 0 á heimavelli. Markatalan eftir þessa sex leiki eru sú að Skotar hafa skorað níu mörk gegn þremur Íslendinga.
Leikirnir eru:
1984 Skotland - Ísland 1 - 0
1985 Ísland - Skotland 2 - 0