U17 karla - Annar leikur Íslands í dag
Strákarnir í U17 leika sinn annan leik í undankeppni EM í dag þegar þeir mæta Tyrkjum. Leikurinn fer fram á Víkingsvelli og hefst kl. 16:00. Hinn leikurinn í riðlinum er á milli Tékka og Armena og fer sá leikur fram á Akranesvelli kl. 13:30.
Íslendingar töpuðu gegn Tékkum í fyrstu umferðinni eftir hörkuleik, 2 - 4. Tyrki lögðu hinsvegar Armena í fyrsta leiknum, 3 - 0. Við hvetjum alla knattspyrnuáhugamenn að fjölmenna á Víkingsvöllinn og hvetja strákana til sigurs.