EM í Futsal - Ísland í riðli með Grikklandi, Lettlandi og Armeníu
Í dag var dregið í undankeppni EM landsliða í Futsal en Ísland tekur þar þátt í fyrsta skipti. Ísland er í B riðli ásamt Grikklandi, Lettlandi og Armeníu. Riðillinn verður leikinn hér á landi dagana 20. - 24. janúar 2011.
Sigurvegari riðilsins kemst áfram í næstu umferð og mun þar leika í Slóveníu ásamt heimamönnum, Bosníu-Herzegóvínu og Ítalíu.