Dregið í undanriðlum EM í Futsal - Riðill haldinn á Íslandi
Í dag verður dregið í undankeppni EM í Futsal en Ísland verður í fyrsta skiptið á meðal þátttakenda. Undanriðlarnir fara fram dagana 20. - 24. janúar 2011 og hefur Ísland verið valið sem gestgjafar eins riðils.
Hægt verður að fylgjast með drættinum í beinni útsendingu á heimasíðu UEFA en Ísland verður í neðsta styrkleikaflokki þegar dregið verður. Drátturinn hefst kl. 12:00 að íslenskum tíma.