Bryndís við störf í Rússlandi
Bryndís Sigurðardóttir hefur verið tilnefnd af UEFA sem einn af aðstoðardómurum í undankeppni EM hjá U17 kvenna en riðillinn er leikinn í Rússlandi dagana 26. sept. - 1. október. Þetta er fyrsta verkefni Bryndísar á erlendri grundu síðan hún varð FIFA - aðstoðardómari.
Þetta er fyrsta tilnefningin sem íslenskur kvendómari fær frá UEFA á erlendri grundu sem er mikið ánægjuefni enda mikill vöxtur í hlut kvendómara í knattspyrnudómgæslu á Íslandi.