U19 karla - Tap gegn Norður Írum
Strákarnir í U19 biðu lægri hlut gegn Norður Írum í vináttulandsleik sem fram fór í Sandgerði í gær. Lokatölur urðu 2 - 5 eftir að staðan hafði verið jöfn í leikhléi, 2 - 2. Þessi lið mætast aftur í vináttulandsleik á Fylkisvelli á morgun, miðvikudag, kl. 16:00.
Það voru þeir Hörður Björgvin Magnússon og Styrmir Árnason sem skoruðu mörk Íslands í þessum leik.