U17 karla - Keppni í riðli Íslands hefst á morgun
Strákarnir í U17 karla hefja á morgun, miðvikudag, leik í undankeppni EM en riðillinn fer fram hér á landi. Fyrsti leikur Íslands verður gegn Tékkum á Laugardalsvelli og hefst hann kl. 19:15. Fyrr um daginn, eða kl. 14:00, mætast Tyrkland og Armenía á KR velli.
Íslenska liðið mætir svo Tyrkjum á Víkingsvelli á föstudaginn kl. 16:00 og lokaleikur íslenska liðsins fer fram í Keflavík, mánudaginn 27. september kl. 16:00, gegn Armenum.
Þarna verður um hörkuviðureignir að ræða og eru knattspyrnuáhugamenn hvattir til þess að mæta á völlinn og berja strákana augum. Ókeypis er inn á alla leiki mótsins.
Áfram Ísland!