U19 karla - Leikið við Norður Íra í Sandgerði í dag
Strákarnir í U19 leika í dag vináttulandsleik gegn jafnöldrum sínum frá Norður Írlandi og fer leikurinn fram kl. 16:00. Leikið verður á Sparisjóðsvellinum í Sandgerði en þjóðirnar mætast aftur á Fylkisvelli næstkomandi miðvikudag.
Kristinn R. Jónsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt og er það þannig skipað:
Markvörður:
- Árni Freyr Ásgeirsson
Aðrir leikmenn:
- Helgi Valur Pálsson
- Sigurður Egill Lárusson
- Daníel Már Ólafsson
- Styrmir Árnason
- Brynjar Gauti Guðjónsson, fyrirliði
- Hólmbert Aron Friðjónsson
- Andri Rafn Yeoman
- Hilmar Árni Halldórsson
- Hörður Björgvin Magnússon
- Guðmundur Þórarinsson
Leikirnir eru hluti af undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM sem fer fram í október og verður leikið í Wales. Auk heimamanna verður þar leikið gegn Kasakstan og Tyrklandi.