U17 kvenna - Öruggur sigur gegn Litháen
Stelpurnar í U17 byrjuðu undankeppni EM af miklum krafti en leikið var gegn Litháen í dag. Lokatölur urðu 14 - 0 eftir að staðan hafði verið 7 - 0 í leikhléi. Riðillinn er leikinn í Búlgaríu og er næsti leikur við heimastúlkur á miðvikudaginn.
Eins og tölurnar bera með sér voru yfirburðir íslenska liðsins miklir og sáu stöllur þeirra frá Litháen aldrei til sólar en veðrið og aðstæður voru hinar bestu í Búlgaríu. Í hinum leik riðilsins voru það Ítalir sem lögðu Búlgari, 4 - 0. Heimastúlkur í Búlgaríu eru einmitt næstu andstæðingar íslenska liðsins en sá leikur fer fram á miðvikudaginn og hefst kl 13:00 að íslenskum tíma.