Knattspyrna kvenna á Íslandi kynnt fyrir þremur aðildarþjóðum UEFA
Í kvöld hefst ráðstefna á vegum UEFA þar sem knattspyrna kvenna á Íslandi er kynnt fyrir þremur aðildarþjóðum UEFA. Er þetta í annað skiptið á einu ári sem UEFA sér ástæðu til þess að senda hingað þjóðir til að kynna sér uppbyggingu og framþróun í knattspyrnu kvenna hér á landi og þá starfsemi sem fram fer innan KSÍ og hjá aðildarfélögum. Í þetta skiptið koma hingað fulltrúar frá Ítalíu, Kýpur og Norður Írlandi og eru þátttakendur um 30 talsins.
Í janúar, fyrr á þessu ári, komu hingað fulltrúar frá Austurríki, Portúgal og Færeyjum í sömu erindagjörðum. Þá, eins og núna, var uppbygging í knattspyrnu kvenna innan KSÍ kynnt sem og aðildarfélög heimsótt og starf þeirra skoðað. Í þetta skiptið verða Breiðablik og Grindavík heimsótt og fylgst þar með æfingum.
Ráðstefnunni lýkur með því að ráðstefnugestir fara á leik Breiðabliks og franska liðsins Juvisy Essonne í 32 liða úrslitum Meistaradeildar UEFA á Kópavogsvelli. Þetta er fyrri leikur liðanna en seinni leikurinn fer fram í Frakklandi 13. október. Valsstúlkur er einnig í baráttunni í þessari keppni en þær leika gegn spænska liðinu Rayo Vallecano en fyrri leikurinn er ytra á fimmtudaginn og sá síðari á Vodafonevellinum 13. október.
Þessar ráðstefnur er hluti af verkefni UEFA þar sem kallast "UEFA Study Group Scheme" en þar miðla þjóðir innan UEFA reynslu sinni til annarra aðildarþjóða. Mikill heiður er af því fyrir knattspyrnu kvenna hér á landi að UEFA velji Ísland sem vettvang til þess að kynna öðrum Evrópuþjóðum uppbyggingu starfseminnar.