Örvar dæmir í Danmörku
Örvar Sær Gíslason mun á laugardaginn dæma leik Bronshoj og FC Fyn í dönsku 1. deildinni. Þetta verkefni er liður í norrænum dómaraskiptum sem hafa verið við lýði á milli knattspyrnusambandi Norðurlanda síðustu ár.
Þessi leikur er liður í 7. umferð dönsku 1. deildarinnar og hafa þessi félög farið heldur rólega af stað. Bronshoj er í 14. sæti deildarinnar með fimm stig en Fyn er í 16. og neðsta sæti með eitt stig.