Bleika slaufan - Dómararnir klæðast bleikum dómaratreyjum
Í októbermánuði verður vakin athygli á brjóstakrabbameini hér á landi eins og gert hefur verið síðustu 10 ár. Þetta er hluti af árlegu alþjóðlegu árveknisátaki en bleikur litur og Bleika slaufan eru tákn verkefnisins.
Í leik Vals og Grindavíkur sem fram fer á Vodafone vellinum á laugardaginn munu dómarar leiksins, sem allar eru konur, klæðast bleikum dómaratreyjum til þess að vekja athygli á málefninu. Eftir leikinn munu svo Valsstúlkur taka við Íslandsmeistaratitlinum en þær tryggðu sér sigur í deildinni í síðustu umferð.