Unglingadómaranámskeið á Sauðárkróki í Fjölbrautarskólanum
Unglingadómaranámskeið verður haldið í Fjölbrautarskólanum á Sauðárkróki fimmtudaginn 23. september kl. 11:20. Um að ræða tveggja og hálfs tíma fyrirlestur og próf viku seinna. Áhersla er lögð á knattspyrnulögin, reglugerðir í 7 mannabolta og ýmis hagnýt mál.
Sá sem lýkur þessu námskeiði öðlast réttindi til þess að dæma í 4. flokki og neðar og getur einnig verið aðstoðardómari í 2. flokki.
Námskeiðið er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri.
Námskeiðið er ókeypis.