Styrkleikalisti FIFA - Ísland niður um 21 sæti
Á nýjum styrkleikalista FIFA, sem birtur var í morgun, fellur íslenska karlalandsliðið niður um 21 sæti. Ísland er í 100 sæti listans en það eru Spánverjar sem eru í efsta sæti listans. Næstu mótherjar Íslendinga í undankeppni EM, Portúgal, eru í 8. sæti listans. Norðmenn eru í 14. sæti, Danir í 29. sæti og Kýpur situr í 43. sæti.