Ísland sendir lið í Evrópukeppni landsliða í Futsal
Stjórn KSÍ hefur ákveðið að senda landslið til keppni undankeppni Evrópumótsins í Futsal. Riðlar undankeppninnar verða leiknir dagana 20. – 24. janúar 2011 og hefur KSÍ sótt um að halda slíkan riðil. Dregið verður í riðla í höfuðstöðvum UEFA 24. september næstkomandi. Úrslitakeppnin fer fram að þessu sinni í Króatíu 2012 en Spánverjar eru handhafar titilsins.
Þetta er í fyrsta skiptið sem íslenskt landslið tekur þátt í verkefnum í Futsal en fyrsta Íslandsmótið í þessari íþrótt fór fram 2008. Þrjú íslensk félagslið hafa tekið þátt í Evrópukeppni félagsliða, Víðir, Hvöt og Keflavík. Riðill Keflavíkur var leikinn hér á landi í ágúst mánuði á þessu ári og þóttist framkvæmdin takast mjög vel.
Vegna þátttöku landsliðsins í þessu verkefni verður Íslandsmótið í innanhúsknattspyrnu – Futsal með breyttu sniði en þátttökutilkynningar verða sendar út til aðildarfélaga á næstu dögum.