U19 kvenna - Byrjunarliðið gegn Ísrael
Stelpurnar í U19 leika sinn annan leik í undankeppni EM í dag þegar þær mæta Ísrael. Leikið er í Búlgaríu og hefst leikurinn kl. 14:00 að íslenskum tíma. Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt í leiknum og gerir hann eina breytingu frá síðasta leik. Hildur Sif Hauksdóttir kemur inn í stað Þórdísar Sigfúsdóttur.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Birna Berg Haraldsdóttir, fyrirliði
Hægri bakvörður: Sara Hrund Helgadóttir
Vinstri bakvörður: Heiðrún Sara Guðmundsdóttir
Miðverðir: Hanna María Jóhannsdóttir og Rebekka Sverrisdóttir
Tengiliðir: Arna Sif Ásgrímsdóttir Fjolla Shala og Katrín Ásbjörnsdóttir
Hægri kantur: Sigrún Ella Einarsdóttir
Vinstri kantur: Hildur Sif Hauksdóttir
Framherji: Berglind Björg Þorvaldsdóttir
Stelpurnar unnu sigur í sínum fyrsta leik, gegn Búlgaríu, 2 - 0. Ísrael tapaði hinsvegar naumlega gegn Úkraínu í fyrsta leik sínum, 1 - 2.
Vert er að minna á að textalýsingu af leiknum verður að finna á heimasíðu UEFA