U19 kvenna - Góður sigur á Búlgaríu í fyrsta leik
Stelpurnar í U19 byrjuðu undankeppni EM á góðu nótunum þegar þær lögðu Búlgaríu í dag. Riðillinn er leikinn í Búlgaríu og voru heimastúlkur lagðar 2 - 0. Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði bæði mörk Íslands í leiknum, eitt í hvorum hálfleik.
Næsti leikur Íslands í riðlinum er gegn Ísrael og fer hann fram á mánudaginn. Ísrael beið lægri hlut gegn Úkraínu í hinum leik riðilsins með einu marki gegn tveimur.