U19 kvenna - Æft við góðar aðstæður í Búlgaríu
Stelpurnar í U19 eru komnar til Búlgaríu en þar leika þær í undankeppni EM. Fyrsti leikurinn fer fram á morgun, laugardag, en þá mæta stelpurnar stöllum sínum frá Búlgaríu. Einnig eru Ísrael og Úkraína í þessum riðli.
Aðstæður eru hinar bestu í Búlgaríu og æfði liðið þar í morgun. Leikurinn við Búlgaríu fer fram kl. 14:00 á morgun að íslenskum tíma og verður fylgst með gangi mála á Facebooksíðu KSÍ.