Grátlegt tap á Parken
Íslendingar biðu lægri hlut gegn Dönum á Parken í gærkvöldi en heimamenn sigruðu 1 - 0. Sigurmark leiksins kom þegar 90 mínútur voru liðnar af leiknum svo tæpara gat það ekki orðið. Vonbrigði strákanna í leikslok voru gríðarleg enda átti íslenska liðið í fullu tré við Dani í leiknum, þá sérstaklega í síðari hálfleik.
Eins og búist hafði verið við þá voru Danir meira með boltann í fyrri hálflleiknum og sóttu meira. Íslenska liðið varðist hinsvegar vel og skipulega og gáfu ekki mörg færi á sér. Leikurinn jafnaðist hinsvegar mikið í síðari hálfleik og átti íslenska liðið nokkrar álitlega sóknir. Markið kom því eins og köld vatnsgusa í lokin og heimamenn fögnuðu sigri.
Næsti leikur Íslands er svo á heimavelli gegn Portúgal en sá leikur fer fram á Laugardalsvelli, 12. október næstkomandi.