Byrjunarlið Íslands gegn Dönum í undankeppni EM 2012
Ólafur Jóhannesson, þjálfari A-landsliðs karla, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt gegn Dönum í undankeppni EM 2012, en íslenska liðið mætir því danska á Parken í Kaupmannahöfn í kvöld.
Tvær breytingar eru gerðar á liðinu frá því í leiknum gegn Norðmönnum á Laugardalsvelli á föstudag. Birkir Már Sævarsson kemur inn í hægri bakvörðinn í stað Grétars Rafns Steinssonar, sem meiddist gegn Noregi og er ekki með í kvöld. Þá kemur Rúrik Gíslason á hægri kantinn og Gylfi Sigurðsson er færður í sóknartengiliðinn í stað Veigars Páls Gunnarssonar, sem tekur sæti á bekknum.
Markvörður
Gunnleifur Gunnleifsson
Hægri bakvörður
Birkir Már Sævarsson
Vinstri bakvörður
Indriði Sigurðsson
Miðverðir
Sölvi Geir Ottesen fyrirliði og Kristján Örn Sigurðsson
Miðtengiliðir
Aron Einar Gunnarsson og Eggert Gunnþór Jónsson
Sóknartengiliður
Gylfi Sigurðsson
Hægri kantmaður
Rúrik Gíslason
Vinstri kantmaður
Jóhann Berg Guðmundsson
Framherji
Heiðar Helguson
Utan hóps að þessu sinni verða Bjarni Ólafur Eiríksson, Matthías Vilhjálmsson, Baldur Sigurðsson og Ingvar Þór Kale.