Þóroddur dæmir í Portúgal
Þóroddur Hjaltalín mun dæma leik Portúgals og Makedóníu í undankeppni EM hjá U21 karla en leikið verður í Portúgal Þóroddi til aðstoðar verða þeir Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson. Varadómari leiksins verður Erlendur Eiríksson.
Þá dæmdi Jóhannes Valgeirsson vináttulandsleik á milli Danmerkur og Litháen hjá U21 karla á föstudaginn en Danir eru gestgjafar úrslitakeppni mótsins og leika því ekki í undankeppninni. Með Jóhannesi á leiknum voru þeir Jóhann Gunnar Guðmundsson og Áskell Gíslason.
Þá mun Sigurður Hannesson verða dómaraeftirlitsmaður UEFA á leik Svía og Dana í umspili um sæti á HM kvenna. Leikurinn fer fram í Gautaborg 11. september.