U19 kvenna - Hópurinn valinn fyrir Búlgaríuferð
Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn er fer til Búlgaríu til þess að leika í forkeppni fyrir EM 2011. Auk heimastúlkna leikur Ísland þar gegn Ísrael og Úkraínu. Leikirnir fara fram dagana 11. - 18. september.
Efstu tvö liðin úr riðlinum tryggja sér sæti í milliriðlum ásamt þeirri þjóð sem er með bestan árangur í þriðja sæti úr riðlunum ellefu. Úrslitakeppnin sjálf fer svo fram á Ítalíu á næsta ári.