U21 karla - Elfar Freyr og Guðmundur Reynir inn í hópinn
Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur bætt við tveimur leikmönnum í hópinn fyrir leikinn gegn Tékkum sem fer fram þriðjudaginn 7. september. Þeir Guðmundur Reynir Gunnarsson úr KR og Elfar Freyr Helgason úr Breiðabliki koma inn í hópinn.
Jósef Kristinn Jósefsson er meiddur og getur ekki verið með í leiknum. Þá á Hólmar Örn Eyjólfsson við meiðsli að stríða og er óvíst með þátttöku hans í leiknum. Hann mun engu að síður fara með liðinu út til Tékklands og fara því 19 leikmenn í ferðina að þessu sinni.