Knattþrautir KSÍ - Sígur á seinni hlutann
Knattþrautir KSÍ hafa verið í fullum gangi í sumar, líkt og síðasta sumar og hafa viðtökurnar verið ákaflega góðar. Nú er farið að síga á seinni hlutann og flest aðildarfélögin hafa verið heimsótt með góðum árangri og enn betri viðtökum.
Það er um að gera að fyrir krakkana að halda áfram að æfa sig í knattþrautunum, ekki síst utan hefðbundins æfingatíma.
Hér að neðan má sjá myndir af nokkrum hressum krökkum frá Fylki, Þrótti, Ægi og KR.