Miðasölu á Danmörk – Ísland að ljúka
Þriðjudaginn 7. september leika Íslendingar við Dani í undankeppni EM 2010 á Parken í Kaupmannahöfn. Hægt er að kaupa miða á þann leik hér á heimasíðunni en til að tryggja miða með kaupum á heimasíðu KSÍ, þarf að ganga frá pöntun í síðasta lagi föstudaginn 27. ágúst.
Hægt er að senda póst á ragnheidur@ksi.is til að fá nánari upplýsingar um miðasöluna og hvernig hægt er að nálgast miðana.