Ísland mætir Eistlandi á morgun - Byrjunarliðið tilbúið
Íslensku stelpurnar mæta stöllum sínum frá Eistlandi í lokaleik sínum í undankeppni fyrir HM 2011. Ljóst er að annað sætið verður hlutskipti íslenska liðsins í riðlinum en stelpurnar engu að síður ákveðnar að ljúka keppni á sigurbraut.
Leikurinn hefst kl. 15:00 að íslenskum tíma og hefur Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari, tilkynnt byrjunarlið sitt og má sjá það hér að neðan.
Vel fer um hópinn í Eistlandi en þó hefur flensa verði að hrjá markvörðinn Guðbjörgu Gunnarsdóttur og er alls óvíst um þátttöku hennar í leiknum á morgun. Liðið æfði á þokkalegum keppnisvellinum í dag og voru allar með á æfingunni að undanskildri Guðbjörgu og þá hvíldi fyrirliðinn Katrín Jónsdóttir einnig en hún er til í slaginn á morgun. Það rigndi hressilega á stelpurnar á meðan æfingunni stóð en búist við ágætis veðri á keppnisdegi.
Byrjunarliðið er eftirfarandi (4-2-3-1):
Markvörður: Sandra Sigurðardóttir
Hægri bakvörður: Rakel Hönnudóttir
Vinstri bakvörður: Ólína G. Viðarsdóttir
Miðverðir: Katrín Jónsdóttir, fyrirliði og Sif Atladóttir
Tengiliðir: Edda Garðarsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir
Hægri kantur: Dóra María Lárusdóttir
Vinstri kantur: Hallber Guðný Gísladóttir
Sóknartengiliður: Guðný Björk Óðinsdóttir
Framherji: Margrét Lára Viðarsdóttir