Hópurinn fyrir leiki gegn Noregi og Danmörku
Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur valið landsliðshópinn sem mætir Noregi á Laugardalsvelli 3. september og Danmörku ytra 7. september. Ólafur hefur valið 21 leikmann í hópinn fyrir þessa leiki sem eru upphafið af undankeppni fyrir EM 2012.
Leikurinn við Norðmenn verður föstudaginn 3. september kl. 19:00 og er miðasala í fullum gangi á þann leik. Því næst verður haldið til Kaupmannahafnar þar sem leikið verður við Dani á Parken, þriðjudaginn 7. september. Hægt er að kaupa miða á þann leik einnig hér á síðunni.